FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  11 virkir notendur  

Skítadjobb - kilja
Fyrsta skáldsaga Ævars Arnar endurútgefin í kilju.

Ævar Örn hefur með glæpasögum sínum áunnið sér vinsældir sem einn fremsti glæpasagnahöfundur landsins. Sögur hans hafa verið gefnar út á Norðurlöndum og sunnar í Evrópu og hlotið góðar viðtökur. Svartir englar og Blóðberg voru báðar tilnefndar til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna.

Efni bókar:
Munnurinn var vígvöllur mölvaðra tanna, sundurtættra vara og þrútinnar tungu, og nefið var aðeins blóðug, ólöguleg klessa alþakin sandi og möl. Hliðin sem að honum sneri var enn sæmilega heilleg en augað var horfið í svarbláan þrota sem fyllti nánast út í augntóftina og andlitið þannig nánast rúið öllum þeim kennileitum sem gera andlit að andliti, manneskju að persónu; það hafði glatað öllu lagi og þarmeð tilgangi. "Andskotinn," muldraði Árni oní jakkann um leið og honum varð aftur litið á lækninn og líkið, "ljóta djöfuls djobbið sem ég er kominn í."
Höfundur: Ævar Örn Jósepsson
Útgáfuár: 2008
Band: Kilja
Verð: 2.280 kr.
Tilboðsverð: 1.780 kr.

Fjöldi:





DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS