FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  7 virkir notendur  

Blóðberg - kilja
Þriðja skáldsaga Ævars Arnar endurútgefin í kilju. Eins og í fyrri bókum hans takast lögreglumennirnir Stefán, Katrín, Guðni og Árni við flókin sakamál.

Ævar Örn hefur með glæpasögum sínum áunnið sér vinsældir sem einn fremsti glæpasagnahöfundur landsins. Sögur hans hafa verið gefnar út á Norðurlöndum og sunnar í Evrópu og hlotið góðar viðtökur. Svartir englar og Blóðberg voru báðar tilnefndar til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna.

Efni bókar:
Einn kaldan febrúarmorgun berast þær fréttir af virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka að sex starfsmenn hafi farist í hörmulegu slysi. Fljótlega koma í ljós vísbendingar sem benda til þess að þetta hafi ekki verið slys heldur kaldrifjað morð – jafnvel fyrsta mannskæða hryðjuverkið á Íslandi. Þegar lögreglulið úr borginni kemur á staðinn mætir því undarlegt samfélag, fjandsamlegt viðmót og hrikaleg náttúra. Einn fárra sem tekur lögreglumönnunum opnum örmum er portúgalskur verkamaður sem brosir breitt og býður þá velkomna með orðunum "Welcome to Alcatraz". Skömmu síðar berast nýjar fréttir af svæðinu sem setja allt þjóðfélagið í uppnám.
Höfundur: Ævar Örn Jósepsson
Útgáfuár: 2008
Band: Kilja
Verð: 2.280 kr.
Tilboðsverð: 1.780 kr.

Fjöldi:





DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS