FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  4 virkir notendur  

Samspil
Í þessari bók leiða saman hesta sína tveir afburðamenn, þeir Benedikt Líndal tamningameistari og Friðþjófur Helgason ljósmyndari. Þeir eiga að baki farsælt samstarf enda hafa áður komið úr smiðju þeirra kennslumyndirnar Frumtamning og Þjálfun. SAMSPIL er lokakaflinn í þeim þríleik. Hér er á ferð einstök bók sem sameinar fræðslu, hugleiðingar og hreina upplifun.

"Í samstarfi tveggja snjallra kunnáttumanna, hestamanns og ljósmyndara, hefur hér orðið til sérlega falleg bók. Í Samspili finnum við margar einstaklega vel teknar ljósmyndir, mikinn fróðleik og leiðbeiningar, fjöldann allan af góðum hugmyndum og einnig dæmisögur úr margra áratuga reynslu tamningamanns í fremstu röð. Höfundi hefur tekist að búa til skemmtilega og spennandi viðbót við kennslumyndirnar tvær sem á undan eru gengnar og að ljúka heildarverkinu með þessari bók sem einkar fallegum og fróðlegum lokakafla."
Pétur Behrends

"Ég hef þekkt Benedikt Líndal í tuttugu og fimm ár. Hann ákvað snemma að nota tímann vel og verja lífi sínu í að þroskast, bæði sem hestamaður og persóna. Það hefur honum tekist. Kennslumyndirnar Frumtamning og Þjálfun, og nú bókin Samspil, tala sínu máli og þurfa ekki frekari vitna við. Verk sem bera höfundinum fagurt vitni."
Jens Einarsson

Höfundur: Benedikt Líndal
Útgáfuár: 2008
Band: Innbundin
Verð: 4.990 kr.
Tilboðsverð: 3.990 kr.

Fjöldi:





DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS