FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  11 virkir notendur  

Ástandsbarnið

Hvers vegna skyldi móðir Ericu Falck hafa varðveitt gamla nasistaorðu? Spuringin lætur Ericu ekki í friði og hún hefur uppi á sögukennara á eftirlaunum til að leita svara. Sá bregst hins vegar undarlega við og veitir engin svör. Tveimur dögum síðar er hann látinn. Myrtur.
Ericu bregður í brún þegar henni berast fréttir af morðinu. Eftir að hafa tvístigið lengi tekur hún til við að lesa dagbækur móður sinnar og kemst þá að því að á stríðsárunum var móðir hennar í sama félagsskap og hinn myrti. Gæti heimsókn Ericu til hans hafa hrundið af stað atburðarás sem leiddi til morðsins? Hver skyldi vera reiðubúinn að fremja morð til að hindra að sannleikurinn um löngu liðna atburði líti dagsins ljós?
Í Ástandsbarninu eru það fjölskylduleyndarmál Ericu Falck sem koma upp á yfirborðið meðan lögreglan í Taumshede þarf að komast af án Patriks Hedström sem er í feðraorlofi.

Camilla Läckberg fléttar samtímanum listilega við heillandi frásögn af atburðum í lífi ungrar konu á fimmta áratugnum.
Ástandsbarnið er fimmta bók Camillu Läckberg um Ericu og Patrik Hedström.

Anna R. Ingólfsdóttir þýddi
Höfundur: Camilla Läckberg
Þýðandi: Anna R. Ingólfsdóttir
Útgáfuár: 2009
Band: Kilja
Verð: 2.480 kr.
Tilboðsverð: 2.170 kr.

Fjöldi:




Bókaklúbbsverð: 1.990 kr.
Panta á bókaklúbbsverði



DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS